07. janúar 2008 klukkan 16:56
Ég er hætt að blogga og byrjuð að reykja...
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
18. desember 2007 klukkan 23:55
Ég vann ekkert á bingÓinu í gær...ekki nýtt! Vinn aldrei neitt í svona leikjum.
Fór inná Akureyri í dag. Fór með mömmu&pabba og T&H það var húkrað á Glerártorgi í ég veit ekki hvað langan tíma og þá sérstaklega inní búðinni Ice In a Bucket! Glerártorg er pínulítið!!!
Trausti og Heiðar eru búnir að vera missa sig yfir þessari Akureyrarferð því þeir ætluðu í bíó! Svakalegt...
Allavega ég kom mér undan þessu Akureyrarhangsi með fari til Ólafsfjarðar...
Náði loxins að klára mynda-showið sem ég er að gera fyrir bekkjarpartýið=) það verður skrautlegt að horfa á það!
Mér er farið að leiðast...hvað á ég að gera?
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
17. desember 2007 klukkan 17:41
Saltkjöt og Baunir Tú kall...það verður í matinn í kvöld;)
Annar ætla ég mér á BINGÓ í kvöld upp í Tjarnó! Það mun vonandi reyna á bingóvöðvana...
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
13. desember 2007 klukkan 17:23
Komin norður.
Keyrði alla leiðina án þess að stoppa! Mjög gaman en það var rás2 sem hélt mér félagsskap mest alla leiðina...
Plata vikunnar var plata Ellenar Kristjánsdóttir hryllilega leiðinleg lög þar á fer.
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
12. desember 2007 klukkan 21:09
Náttúrufræðiprófið er á morgun, LOXINS...rubba þessu skíta prófi af svo er ég farin norður - víst ekki í flugi! heldur á sumardekkjunum - alein - vá hvað það á eftir að vera leiðinlegt!!!
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
11. desember 2007 klukkan 00:11
Stormviðvörun!
Mér er illt í fætinum vegna þess að ég smallaði útstæða mjaðmabeinið á Kristínu! og Olnbogann á Ingibjörgu á æfingu áðan. Get ekki farið á æfingu án þess að meiða mig! er sko með feitann marblett sem ég er ekki stolt af...
Er að deyja úr hausverk. Ætla mér að kenna terpentínunni um, ég var að sniffa sko! Ekki alveg ég var að mála og ég er ekki frá því að ef ég myndi kveikja á eldspspýtu inni í herberginu mínu núna þá myndi herbergið fuðra upp...
Orðið svolítið hvasst úti og ég held ég fari að neyðast til þess að loka glugganum þá á ég eflaust eftir að vera alveg skæ hæ...
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
09. desember 2007 klukkan 22:07
Sunnudagur til sigur. Ég kláraði að lesa bókin Jarðagæði í dag og er byrjuð á hefti sem er einnig til prófs svo núna á ég bara eftir að klára það og sökkva mér svo oní glósurnar. Stuð.
Var að hugsa um það hversu mikið mig langar upp á Gullatún að renna mér niður á tuðrubelgnum sem Giggi pabbi Alvildu reddaði okkur hérna í denn þegar við vorum ung og vitlaus. Núna erum við bara vitlaus.
Jólaplan.
Odda og Guðmar fóru norður í gær til þess að leggja sund-kork á eldhúsgólfið í húsið sitt heima á Ólafsfirði. Krakkaormarnir Sóley og Mikael gistu hjá ömmu sinni og afa, víst skemmtilegra að vera þar en hjá Dísu frænku! Ég ætlaði mér ekki að vera ein heima því það er skuggalega drungalegt hérna í þessu skuggalega myrkri úti, svo Klara kom þegar hún var búin að vinna og gisti. Lýra ofurrakki var þó hjá mér en hún myndi nú ekki gera mikið nema flaðra upp um ræningja og bófa ef þeir kæmu og bjóða þá velkomna, flatmagast og bíða eftir klóri.
Fór þó út með Lýru í dag og þegar við komum heim þá sá hún köttinn sem er alltaf e-ð að flandrast hérna í kringum húsið og hún ætlaði sko að stökkva á hann og ná honum. þar sem hún var í bandi náði hún honum ekki en það er þó einhver von um grimmd í henni í garð þeirra sem óvelkomnir eru!
Svo fór ég áðan að borða hjá Helgu og Gumma, ljúffenga kjúklingasúpu og náði í ormana í leðinni. Mikki Mús fór svo að sofa eftir að ég las Þumalínu fyrir hann. Mér hefur tekist að hræða hann með Grýlu og Leppalúðasögum en þangað til núna hefur hann haldið því fram að þau séu steindauð! Held nú aldeilis ekki.
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
08. desember 2007 klukkan 17:46
Drattaðist ekki á fætur fyrr en klukkan 11 í morgun, alltof seint.
Lærði smá eða sama og ekki neitt. Verð að vera dugleg, ætla klára bókin eftir þetta blogg! (fat chance)
Er bara búin að hanga í dag. Alls ekki vel nýttur dagur og væri honum betur varið í meiri lærdóm eða búa til jólagjafir þar sem ég hef nýlega fengið innblásur frá Kristjáni Davíðssyni um að mála abstrakt.
E-ð um fjögur átti ég að fara að ná í Sóley þar sem hún var í stúdíói í Vatnagörðum að taka upp lagið með Nínu og Geira. Hún söng Geira. Mér tókst að fara eins og drusla til fara, ekkert nýtt svosem, nema það ég þurfi að hanga þarna til fimm með fansý smansý fólki í sínu fínasta pússi, eða svona næstum því.
Annars er Sóley búin að vera nauðga þessu lagi síðasta mánuðinn og tók sig vel út sem Geiri.
Frægasti og bestasti söngvari Íslandssögunnar var á svæðinu, Gitta Haukdal. Er hún annars ekki best?
Eníveis þetta á eftir að koma í sjónvarpinu, það verður skrautlegt og gaman að sjá.
Ætti ég að fara læra eða horfa á sjónvarpið...erfitt val!
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
07. desember 2007 klukkan 20:59
Súkkulaðihúðað Oreo kex er það allra sveittasta sem ég hef kynnst og þá er sko mikið sagt!
Á bloggsíðunni Kötu er Villi að halda því fram að hann sé born tú bí a model. Þó svo hann sé alveg dropp ded gordíos og það handsome að ég smelli á mig smekk í hvert skipti sem hann nálgast! þá efasta ég stórlega um að sá "langaþráði" draumur hans um að verða model eigi eftir að rætast, nema náttlega ef hann myndi skella sér til Bollywood þá gæti e-ð gerst.
Annar er ég með hugmynd Villi til þess að koma þér á framfæri. Mér finnst þú ættir að pósa á dagatali, auðvitað í lakki og leðri. janúarmánuður er nú frekar kaldur svo þú þarf að hlýja þeim með myndunum. Ekkert klámfengt samt, manst það og alls engar myndir af þeim stöðum þar sem sólin ekki skín.
Ég veðraðist öll upp þegar ég sá besta ávöxt í heim í Hagkaup í gær. Þennan ávöxt sem heitir Granadilla var ég alltaf að borða útí Perú. Einu sinni smakkað og þú getur ekki hætt, án gríns.
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir
06. desember 2007 klukkan 18:11
Styttist óðum í jólin.
Var vakin af símanum mínum klukkan tíu, korteri síðar fór ég frammúr og klukkan 11 var ég komin til Klöru. Við röltuðum Laugarveginn í snjókomu takk fyrir pent.
Ýmislegt var keypt og ég held að debedkortið mitt sé enn sjóðheitt en Klöru kort brann.
Ég á flug norður 14 des. og var ég að fá þær fréttir að það verður vínsmökkunarkynning á Höllinni og fleira í gangi mér til heiðurs. Þarf náttlega ekkert að tilkynna það en ég kem með látum!
Er ekkert búin að læra í dag. Sjöundi kaflinn í bókinni Jarðagæði er alveg að fara með mig. Ef ég bara hefði áhuga á að læra um flekskil, flekamót og sniðgeng flekamörk þá væri lífið svo miklu auðveldara.
Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir